Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum
Vísir greinir frá því að þrír af fjórum stjórnarmönnum í nýkjörinni stjórn Ungra vinstri grænna hafi áður setið á framboðslistum Sósíalistaflokksins. Nýr formaður, Ari Orrason, segir hann og félaga sinn hafa skipt um flokk vegna þess að starf Sósíalista á landsbyggðinni hafi lagst af.
Framboðslistarnir eru styrkur fréttarinnar. Blaðamaðurinn rekur sæti hvers stjórnarmanns á listum fyrri kosninga, allt atriði úr opinberum gögnum sem lesandinn getur sjálfur flett upp. Fyrirsögnin er því vel studd og þetta er sjálfstæð vinna, ekki endursögn annars miðils.
Tilvitnun formannsins hefst þó á orðunum „Ég get nú svarað fyrir Elísabetu“, sem stangast á við framhaldið. Samhengið bendir eindregið til þess að neitun hafi fallið niður. Þar með er merking orða nafngreinds manns snúin við. Í spurningu blaðamanns er auk þess talað um stjórn VG þegar átt er við stjórn ungliðahreyfingarinnar, og það er tvennt ólíkt.
Raddflóran er einsleit. Ari ber einn skýringuna á vistaskiptunum, og fullyrðing hans um að starf Sósíalista úti á landi hafi lagst af er aldrei borin undir Sósíalistaflokkinn. Elísabet, sem fréttin segir sjálf að Ari geti ekki svarað fyrir, virðist ekki hafa verið spurð. Í léttri frétt af þessu tagi er það minni háttar galli, en eitt símtal hefði styrkt hana.