Jóhannes Loftsson varar við mögulegum langtímaafleiðingum COVID-bóluefna: „Við erum að sjá holskeflu núna“
Nútíminn endursegir viðtal Frosta Logasonar við Jóhannes Loftsson, stjórnarmann í Heilsuvon, sem birtist á Brotkast.is. Jóhannes varar við langtímaafleiðingum COVID-bóluefna, vísar í könnun Maskínu sem Heilsuvon lét gera og gagnrýnir heilbrigðisyfirvöld og ný sóttvarnalög.
Öll fréttin er sótt í hlaðvarpsviðtal á öðrum miðli. Nútíminn ræddi ekki sjálfur við neinn, hvorki Jóhannes né þá sem hann gagnrýnir. Heilbrigðisyfirvöld, Lyfjastofnun og embætti landlæknis sæta harðri gagnrýni, en ekkert bendir til þess að leitað hafi verið svara hjá þeim. Það er stærsti gallinn.
Ritstjórnin á hrós skilið fyrir að skjóta inn fyrirvörum: hún bendir á að könnun um upplifun fólks sýni ekki orsakasamband og að slembiraðaðar rannsóknir styðji ekki notkun ivermektíns. Fyrirvararnir eru þó án heimilda. Engin rannsókn, stofnun eða sérfræðingur er nefndur, svo lesandinn stendur frammi fyrir orði ritstjórnar gegn orði viðmælanda. Könnunin er auk þess pöntuð af samtökum Jóhannesar. Þar mætti segja skýrar að spurningin um hvort fólk „þekki einhvern“ bjóði upp á tvítalningu og að framreikningur í 24 þúsund manns standist því ekki.
Fyrirsögnin tekur upp „holskeflu“ Jóhannesar orðrétt og gefur fyllyrðingunni vægi áður en nokkur fyrirvari kemur fram.