Kolbeinn Stefánsson hjólar í fjölmiðla og háskólasamfélagið: „Við erum tilbúin að trúa öllu slæmu um karla“
Nútíminn endursegir viðtal Frosta Logasonar við Kolbein Stefánsson, dósent við Háskóla Íslands, úr Spjallinu á Brotkasti. Kolbeinn gagnrýnir umfjöllun fjölmiðla um skýrslu Equimundo um viðhorf íslenskra karla og varar við pólitískri hugmyndafræði í félagsvísindum.
„Hvar eru ritstjórarnir?“ spyr Kolbeinn Stefánsson, og spurningin á ekki síður við um þessa grein. Viðmælandinn gagnrýnir fjölmiðla fyrir að hafa tekið niðurstöðum skýrslu gagnrýnislaust. Nútíminn gerir slíkt hið sama við málflutning hans: endursegir þátt Spjallsins á Brotkasti án þess að bæta við nokkurri eigin upplýsingaöflun.
Viðtal við einn mann má vel bera eina rödd. Greinin fullyrðir hins vegar sjálf að íslenskir félagsvísindamenn hafi gert „alvarlegar athugasemdir“ við rannsóknina. Þeir eru þó hvorki nefndir á nafn né er sagt hverjar athugasemdirnar voru. Ekki var heldur leitað viðbragða hjá Equimundo eða Norrænu ráðherranefndinni. Lesandinn fær því aldrei að vita hvað var í raun athugavert við rannsóknina.
Tilvísunin í International Social Survey Programme er gild heimild sem lesandi getur sannreynt. Engar tölur eru þó sóttar í gögnin og ekki er útskýrt hvort þau mæla það sama og skýrsla Equimundo. Fyrirsögnin, með orðalaginu „hjólar í“ og beittustu tilvitnuninni, ýtir enn frekar undir að ein túlkun á umdeildu máli sé tekin sem gefin.