Auðmannadeilur fyrir dóm: Segja Heiðar hafa villt sér sýn
Ítarleg fréttaskýring um skaðabótamál Gavia Invest gegn Heiðari Guðjónssyni og tilkynningu stjórnar Sýnar til Fjármálaeftirlitsins vegna gruns um innherjasvik. Blaðamaður leitaði viðbragða hjá öllum aðilum og birtir synjun Heiðars orðrétt. Kjarnaefnið hvílir þó að stórum hluta á ónafngreindum heimildum og tölum sem lesandinn getur ekki rakið.
Vinnubrögðin við öflun viðbragða eru til fyrirmyndar og eiga að nefnast fyrst: Heiðari var kynnt efni umfjöllunarinnar, honum boðið viðtal, synjun hans birt orðrétt og tilraunir til að ná í forsvarsmenn félaganna raktar. Þá er tekið sérstaklega fram að málið beinist ekki að Kristínu Friðgeirsdóttur þótt stjórnarseta hennar sé nefnd. Mótrök Heiðars, um endurmat Gavia á virði Controlant og um hæfismat Fjármálaeftirlitsins, fá raunverulegt rými.
Burðarvirkið er hins vegar veikara en umfangið gefur til kynna. Lögfræðiálit Andra Fannars Bergþórssonar er miðlægt en hefur hvorki fengist birt né afhent; niðurstaða þess er einungis endursögð eftir ónafngreindum viðmælendum. Sama gildir um röksemdafærsluna að baki bótakröfunni.
Alvarlegast er tölukaflinn. Nákvæmar fjárhæðir um tekjur Sýnar af Controlant eftir ársfjórðungum eru hvergi raktar til uppgjörs eða annarra gagna, og slík sundurliðun eftir einstökum viðskiptavini birtist ekki í opinberum reikningsskilum. Lesandinn getur ekki sannreynt lykilröksemdina innan fréttarinnar. Upptalning þungra fangelsisdóma fyrir innherjasvik þyngir svo framsetninguna gagnvart manni sem hvorki hefur verið ákærður né staðfest að sé til rannsóknar.